Austfirðingar öryggir í 1. deild
Þeir fengu fyrir peninginn sem lögðu leið sína á Seltjarnarnesið í dag þegar Grótta tók á móti Fjarðabyggð.
Heimamenn byrjuðu betur og komust yfir með marki frá Guðmundi Marteini Hannessyni strax á 5. mínútu. Eftir það tók Fjarðabyggð völd á leiknum og komust yfir með tveimur mörkum Jóhanns Ragnars Benidiktssonar en annað þeirra náðist á myndband. Undir lok fyrri hálfleiks skoraði Niko Jelicic spaugilegt sjálfsmark og hálfleikstölur 2-2. Það var síðan glæsiskot Sveins Fannars Sæmundssonar sem tryggði Fjarðabyggð stigin þrjú en mat manna var að Sveinn hafi verið maður leiksins í dag.
Eftir að Sindri og ÍR gerðu jafntefli er ljóst að Fjarðabyggð er búið að tryggja sér 1. deildarsæti að ári.
Beðist er velvirðingar á gæðum myndbandsins sem fylgir þessari frétt.
1-0 Guðmundur Marteinn Hannesson ('5)
1-1 Jóhann Ragnar Benidiktsson ('17)
1-2 Jóhann Ragnar Benidiktsson ('30)
2-2 Markaskorara Vantar ('45)
2-3 Sveinn Fannar Sæmundsson ('55)
Athugasemdir