,,Þetta er alveg ömurlegt, maður veit eiginlega ekki hvað maður á að segja. Ég er hálf bugaður eftir þennan leik en það býðst ekkert annað en að halda áfram og meðan við erum í séns þá höldum við áfram og við söxuðum allavega á Selfyssingana og getum saxað á þá enn frekar í næsta leik." sagði Páll Kristjánsson, þjálfari KV eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn KA á KR-velli í dag.
,,En auðvitað eigum við að klára þennan leik, við eigum að vinna KA þegar við erum einum fleiri í 40 mínútur og menn sem klára ekki svoleiðis leiki, þeir þurfa að grafa svolítið djúpt ofan í hausinn á sér og kanna hvað er að."
Páll var þá spurður út í spilamennsku liðsins.
,,Hún var allt í lagi, ekki góð en heldur ekkert slæm. Það er smá stígandi í þessu hjá okkur, við erum náttúrulega búnir að tapa fjórum leikjum í röð og auðvitað hefur það áhrif á sálina á mönnum, menn eru stressaðir og það þarf lítið að bregða út á til að menn fari í baklás."
,,Við gerðum margt ágætt en það er bara einbeitingarleysi og kæruleysi, þegar þú ert einum fleiri, að bjóða upp á svona skyndisóknir til baka þar sem þeir eru tveir á tvo, þrír á tvo. Þetta er ekkert annað en aulaskapur, að bjóða upp á þetta. Þegar menn bjóða upp á svona þá er engin tilviljun að menn séu í þessari stöðu." sagði Páll, en mörkin sem KV fengu á sig voru bæði klaufaleg var hann spurður frekar út í varnarleikinn.
,,Varnarleikurinn var bara ekki nægilega góður, við fáum á okkur tvö mörk á móti KA á heimavelli. Lið sem hefur að engu að keppa, sem eru bara að klára Íslandsmótið og það er engin pressa á þeim eða neitt slíkt. Það er allt undir hjá okkur og menn sýna svona einbeitingarleysi sem býður upp á svona mark það er bara óafsakanlegt."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan en Páll talar einnig um framhaldið og fallbaráttuna.
Athugasemdir