lau 23. ágúst 2014 15:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rodgers býst við miklum sóknarbolta er Liverpool og City mætast
Brendan Rodgers.
Brendan Rodgers.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, býst við miklum sóknarbolta er Liverpool fer á Etihad völlinn að mæta Manchester City á mánudaginn.

City skoraði 102 mörk á síðustu leiktíð er þeir urðu enskir meistarar á meðan Liverpool skoraði 101.

Leikir liðana hafa verið mjög jafnir undanfarið en Rodgers býst við skemmtilegum sóknarbolta.

,,Bæði lið vilja spila sóknarbolta, en þetta eru jafnir leikir," sagði Rodgers.

,,Ef þú lítur á leikmenn liðana þá eru leikmenn sem skapa mikið og vilja skora mörk. Bæði lið munu sækja og við munum vonandi fá skemmtilegan leik."

,,Við vitum að við getum gert þeim erfitt fyrir."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner