Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 23. ágúst 2016 16:12
Magnús Már Einarsson
Eiður óskar Fulham til hamingju með að fá Ragga
Eiður í upphitun fyrir leik með Fulham.
Eiður í upphitun fyrir leik með Fulham.
Mynd: Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen hefur birt færslu á Twitter þar sem hann óskar Fulham til hamingju með að fá Ragnar Sigurðsson í sínar raðir.

Fulham er að kaupa Ragnar frá Krasnodar í Rússlandi eins og Fótbolti.net greindi frá í dag.

Ragnar er í London að ganga frá félagaskiptunum en Fulham á eftir að staðfesta þau með fréttatilkynningu.

Eiður Smári þekkir til hjá Fulham því hann lék með liðinu í nokkra mánuði á láni árið 2011.

Í færslunni á Twitter segir Eiður að Fulham hafi verið að fá „skrímsli" í sínar raðir og að Ragnar hafi verið besti leikmaður Íslands á EM.

Hér að neðan má sjá færsluna hjá Eiði.



Athugasemdir
banner
banner