Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. ágúst 2016 13:34
Magnús Már Einarsson
Íslenski landsliðshópurinn - Hólmar og Viðar koma inn
Eiður Smári og Hjörtur út
Helgi Kolviðsson og Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundinum í dag.
Helgi Kolviðsson og Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundinum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Hólmar Örn kemur inn.
Hólmar Örn kemur inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti nú rétt í þessu hópinn sem mætir Úkraínu í undankeppni HM þann 5. september næstkomandi.

Tvær breytingar eru á 23-manna hópnum síðan á EM í Frakklandi í sumar en þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Hjörtur Hermannsson detta út síðan þá. Eiður Smári er félagslaus í dag en Hjörtur er á leið í verkefni með U21 árs landsliðinu.

Viðar Örn Kjartansson snýr aftur í landslisðhópinn eftir að hafa raðað inn mörkum með Malmö í Svíþjóð og Hólmar Örn Eyjólfsson, varnarmaður Rosenborg, kemur einnig inn í hópinn.

Hér að neðan má sjá hópinn í heild sinni.

Markmenn
Hannes Þór Halldórsson (Randers FC)
Ögmundur Kristinsson (Hammarby)
Ingvar Jónsson (Sandefjord)

Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson Hammarby)
Ragnar Sigurðsson (FK Krasnodar)
Kári Árnason (Malmö)
Ari Freyr Skúlason (Lokeren)
Sverrir Ingi Ingason (Lokeren)
Haukur Heiðar Hauksson (AIK)
Hörður Björgvin Magnússon (Bristol City)
Hólmar Örn Eyjólfsson (Rosenborg)

Miðjumenn
Aron Einar Gunnarsson (Cardiff City)
Emil Hallfreðsson (Udinese)
Birkir Bjarnason (FC Basel)
Jóhann Berg Guðmundsson (Burnley)
Gylfi Þór Sigurðsson (Swansea City)
Theódór Elmar Bjarnason (AGF)
Rúnar Már Sigurjónsson (Grasshopper-Club)
Arnór Ingvi Traustason (Rapid Vín)

Sóknarmenn
Kolbeinn Sigþórsson (Nantes)
Alfreð Finnbogason (Augsburg)
Jón Daði Böðvarsson (Wolves)
Viðar Kjartansson (Malmö)
Athugasemdir
banner
banner