Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 23. ágúst 2016 17:00
Magnús Már Einarsson
Joe Hart spilar á morgun - Bravo mættur í læknisskoðun
Claudio Bravo er á leið til Manchester City.
Claudio Bravo er á leið til Manchester City.
Mynd: Getty Images
Claudio Bravo, markvörður Barcelona, er mættur til Manchester til að fara í læknisskoðun hjá Manchester City.

City er að kaupa markvörðinn frá Barcelona á 17 milljónir punda.

Willy Caballero hefur varið mark City í byrjun tímabils en Joe Hart verður í markinu í síðari leiknum gegn Steaua Búkarest í Meistaradeildinni annað kvöld. City vann fyrri leikinn 5-0.

Leikurinn á morgun verður þó líklega síðasti leikur Hart fyrir City, í bili að minnsta kosti.

Hart hefur fengið þau skilaboð að hann megi fara frá City og líklegt er að hann fari á lán eftir komu Bravo.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner