Gríska félagið Olympiakos hefur keypt miðju- og vængmanninn Marko Marin frá Chelsea.
Marin er 27 ára og á 16 landsleiki að baki fyrir Þýskaland.
Marin er 27 ára og á 16 landsleiki að baki fyrir Þýskaland.
Hann var keyptur til Chelsea frá Werder Bremen 2012 en náði ekki að koma sér í alvöru hlutverk hjá liðinu. Hann lék aðeins sex aðalliðsleiki fyrir Lundúnafélagið.
Frá Chelsea fór Marin víða á lán; til Sevilla, Fiorentina, Anderlecht og Trabzonspor.
Athugasemdir