Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 23. ágúst 2016 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Janmaat til Watford og Yedlin til Newcastle
Daryl Janmaat er á leið til Watford.
Daryl Janmaat er á leið til Watford.
Mynd: Getty Images
Hollenski hægri bakvörðurinn Daryl Janmaat er á leið til Watford fyrir 7.5 milljónir punda samkvæmt Sky Sports.

Janmaat er ekki í leikmannahópi Newcastle gegn Celtenham í deildabikarnum sem er í gangi og er talinn vera á leið til Lundúna til að gangast undir læknisskoðun.

Sky segir það einnig öruggt að hægri bakvörðurinn DeAndre Yedlin sé á leið frá Tottenham og til Newcastle fyrir 5 milljónir punda.

Yedlin, sem lék 23 deildarleiki á láni hjá Sunderland á síðasta tímabili, á að fylla í skarð Janmaat er Newcastle reynir að komast beint aftur upp í deild þeirra bestu.

Janmaat hefur verið lykilmaður hjá Newcastle frá komu sinni fyrir tveimur árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner