AC Milan hefur hafnað 30 milljóna punda tilboði frá Chelsea í varnarmanninn Alessio Romagnoli.
AC Milan vill ekki selja Romagnoli í þessum félagaskiptaglugga og því hafnaði félagið tilboðinu.
Romagnoli kom til AC Milan frá Roma á 21 milljón punda fyrir ári síðan.
Frammistaða hans var það góð á síðasta tímabili að ítalskir fjölmiðlar líktu honum við Alessandro Nesta og Thiago Silva.
Athugasemdir