Aston Villa er að reyna að fá kantmanninn Robert Snodgrass á láni frá West Ham.
Birmingham og Sunderland hafa einnig sýnt Snodgrass áhuga en samkvæmt frétt Sky er líklegast að hann endi hjá Villa.
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er á mála hjá Aston Villa og hann fær ennþá meiri samkeppni í öflugum leikmannahópi liðsins ef Snodgrass kemur.

Hinn 29 ára gamli Snodgrass var í lykilhlutverki hjá Hull áður en West Ham keypti hann í byrjun árs á 10,2 milljónir punda.
Dvöl hans hjá West Ham hefur ekki gengið að óskum og Snodgrass fékk í síðustu viku þau skilaboð að hann megi fara frá félaginu.
Athugasemdir