Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. ágúst 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Bikarúrslitaleikur kvenna færður á laugardag
ÍBV og Stjarnan mætast í bikarúrslitunum.
ÍBV og Stjarnan mætast í bikarúrslitunum.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ákveðið hefur verið að færa úrslitaleik Borgunarbikars kvenna af föstudeginum 8. september til laugardagsins 9. september.

Er þetta gert til að auðvelda stuðningsmönnum ÍBV að mæta á leikinn.

Úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 9. september klukkan 17:00.

Klukkan 14:00 sama daga spilar karlalið ÍBV við KR í Vesturbænum í 18. umferð í Pepsi-deild karla. ÍBV varð bikarmeistari í karlaflokki á dögunum.

Í fyrra var ÍBV einnig í bikarúrslitum bæði í karla og kvenna. Þá fór úrslitaleikur kvenna fram á föstudegi en ÍBV tapaði þar gegn Breiðabliki.
Athugasemdir
banner
banner
banner