Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. ágúst 2017 17:29
Elvar Geir Magnússon
Höskuldur skoraði tvö í sænska bikarnum
Höskuldur skoraði tvö í dag.
Höskuldur skoraði tvö í dag.
Mynd: Getty Images
Blikinn Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Halmstad þegar liðið vann 3-1 útisigur gegn C-deildarliðinu Kristianstad í sænska bikarnum í dag.

Höskuldur skoraði tvö fyrstu mörkin í leiknum og leiddi Halmstad 2-0 í hálfleik.

Tryggvi Hrafn Haraldsson, sem fór til Halmstad nýlega frá ÍA, kom inn sem varamaður í leiknum.

Halmstad er í harðri fallbaráttu í sænsku úrvalsdeildinni en liðið er í fallsæti, sex stigum frá öruggu sæti þegar 10 umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner