Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 23. ágúst 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
Sabiri til Huddersfield (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Huddersfield hefur keypt framherjann Abdelhamid Sabiri í sínar raðir frá Nurnberg.

Hinn tvítugi Sabiri skoraði fimm mörk í níu leikjum í þýsku B-deildinni á síðasta tímabili.

„Þegar ég hef rætt við hann þá hef ég hrifist af því hversu spenntur hann er að koma til félagsins og sanna sig í ensku úrvalsdeildinni," sagði David Wagner stjóri Huddersfield.

„Hann er ennþá að læra leikinn og hann getur bætt sig mikið."

Huddersifeld hefur komið með látum inn í ensku úrvalsdeildina og unnið fyrstu tvo leiki sína þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner