Leikið var í danska bikarnum í fótbolta í dag. Kjartan Henry Finnbogason opnaði þar markareikning sinn fyrir B-deildarliðið Horsens en hann gekk í raðir félagsins í sumar.
Hann kom Horsens í 2-0 í seinni hálfleik gegn Brabrand á útivelli. Heimamenn minnkuðu muninn í lokin en úrslitin 1-2.
Hann kom Horsens í 2-0 í seinni hálfleik gegn Brabrand á útivelli. Heimamenn minnkuðu muninn í lokin en úrslitin 1-2.
Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson fékk tækifæri í liði Randers sem vann 7-1 útisigur gegn B-liði Kolding.
Ögmundur gekk í raðir Randers frá Fram í sumar en hann hefur verið varamarkvörður liðsins í dönsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir