Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. september 2014 18:30
Elvar Geir Magnússon
Draumaliðsdeildin: Daníel Laxdal maður leiksins
Daníel Laxdal var afar öflugur í vörn Stjörnunnar.
Daníel Laxdal var afar öflugur í vörn Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Bónusstigin eru komin í hús fyrir leiki dagsins í Draumaliðsdeild Domino's.

Maður leiksins í hverjum leik fær 3 bónusstig og sá sem er næstbestur að mati Fótbolta.net fær 2 bónusstig í Draumaliðsdeildinni.

Fjölnir og Stjarnan gerðu markalaust jafntefli í afar mikilvægum leik. Fjölnir var nær því að tryggja sér sigurinn en stigið þó kærkomið fyrir liðið í botnbaráttunni.

Stjarnan mátti alls ekki við því að tapa leiknum en vonin um úrslitaleik gegn FH í lokaumferðinni lifir enn. Stjarnan er tveimur stigum á eftir Hafnarfjarðarliðinu.

Daníel Laxdal var maður leiksins en hann var frábær í hjarta varnarinnar hjá Stjörnunni í dag.

Fjölnir 0 - 0 Stjarnan
3 - Daníel Laxdal (Stjarnan)
2 - Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir)
Athugasemdir
banner
banner