Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   þri 23. september 2014 19:01
Magnús Már Einarsson
Gunnar Már: Þetta er að eyðileggja mótið fyrir mér
Gunnar Már Guðmundsson.
Gunnar Már Guðmundsson.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
,,Þetta er að eyðileggja mótið fyrir mér," sagði Gunnar Már Guðmundsson miðjumaður Fjölnis svekktur eftir markalaust jafntefli Fjölnis og Stjörnunnar í kvöld.

Garðar Örn Hinriksson sýndi Gunnari rauða spjaldið í viðbótartíma fyrir brot á Atla Jóhannssyni.

,,Þetta voru mjög litlar sakir og ef það væri hægt að áfrýja þá yrði þessu áfrýjað. Hann var búinn að sleppa Atla fyrr í leiknum með gróft brot. Maður hefði sætt sig við gult spjald en hann fullyrðir að ég hafi farið með tvær fætur á undan mér í loftköstum í leikmanninn."

,,Ég fer ekki í leikmanninn og ekki með tvær fætur á undan mér. Þegar ég mæti manninum þá er ég kominn með fótinn í jörðina."

,,Atli stendur sjálfur upp og fullyrðir að þetta sé aldrei rautt. Þetta er ansi dýrt í fallbaráttunni en þetta er búið og gert."

Fjölnismenn eru með 20 stig eftir leikinn í kvöld, tveimur stigum á undan Fram en sigur hefði farið langt með að tryggja sæti liðsins í deildinni.

,,Við erum svekktir að hafa ekki tekið þrjú stig. Okkar spilamennska gekk upp og við fengum tækifæri til að klára leikinn."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner