Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. september 2014 19:20
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin: Besta markið og klúður sumarsins í sömu umferð?
Jonathan Glenn skoraði frábært mark.
Jonathan Glenn skoraði frábært mark.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
20. umferð Pepsi-deildarinnar lauk áðan þegar fram fór leikur Fjölnis og Stjörnunnar í Grafarvoginum í dag. Niðurstaðan í þeim leik var markalaust jafntefli en það var með hreinum ólíkindum hvernig Þórir Guðjónsson, leikmaður Fjölnis, klúðraði dauðafæri í leiknum.

Þórir steig á boltann í sannkölluðu dauðafæri en hægt er að sjá færið á síðu Vísis með því að smella hérna.

Aðrir leikir umferðarinnar fóru fram á sunnudag en þá skoraði Jonathan Glenn, leikmaður ÍBV, gull af marki sem sjá má úr íþróttafréttum Stöðvar 2 með því að smella hérna. Markið kom í 3-3 jafntefli gegn KR.

Komu mark sumarsins og klúður sumarsins í sömu umferðinni? Segðu þína skoðun í ummælakerfinu hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner