Brendan Rodgers segir Mario Balotelli vera góðan náunga sem þykir vænt um Liverpool.
Balotelli varð fyrir barðinu á kynþáttaníð eftir að hann skaut á Manchester United á Twitter um helgina þegar félagið tapaði fyrir nýliðum Leicester City.
Balotelli varð fyrir barðinu á kynþáttaníð eftir að hann skaut á Manchester United á Twitter um helgina þegar félagið tapaði fyrir nýliðum Leicester City.
,,Ég hef virkilega notið þess að vinna með Balotelli hingað til. Hann er góður náungi, vill gera góða hluti fyrir félagið og hefur sýnt mér að honum þykir vænt um félagið," sagði Rodgers.
,,Í mínum augum er þetta ekki flókið. Hann er fótboltamaður sem vill gera vel í lífinu og á ferlinum. Ef hann heldur áfram að leggja sig fram þá verður hann alltaf partur af liðinu."
Athugasemdir