Luis Suarez mun spila með B-liði Barcelona í æfingaleik gegn U19 ára landsliði Indónesíu á morgun.
Luis Enrique, þjálfari Barcelona, staðfesti þetta í dag.
Suarez er í leikbanni fram í lok október eftir að hafa bitið Giorgio Chiellini á HM í sumar.
Eftir að Barcelona áfrýjaði fjögurra mánaða banni leikmannsins fékk hann hins vegar leyfi til að æfa með félaginu og spila æfingaleiki.

Fyrsti leikur Suarez í spænsku úrvalsdeildinni verður væntanlega þegar Barcelona mætir Real Madrid þann 25. október en hann verður þá laus úr leikbanninu.
Athugasemdir