Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 23. september 2017 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Leicester og Liverpool: Lovren kemur inn
Lovren byrjar hjá Liverpool.
Lovren byrjar hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Chamberlain er áfram á bekknum.
Chamberlain er áfram á bekknum.
Mynd: Getty Images
Veislan heldur áfram í enska boltanum.

Núna fer þeim sex leikjum sem hófust 14:00 að ljúka og síðasti leikur dagsins fer senn að taka við. Í síðasta leik dagsins mætast Leicester og Liverpool á King Power leikvanginum í Leicester.

Þessi lið mættust í deildabikarnum í vikunni og þá hafði Leicester betur. Liverpool hefur því harma að hefna í dag.

Það er búið að opinbera byrjunarliðin.

Frá síðasta deildarleik Liverpool koma Joe Gomez og Alberto Moreno inn í bakvarðarstöðurnar og Dejan Lovren spilar við hlið Joel Matip í hjarta varnarinnar.

Jordan Henderson kemur inn á miðjunni og fremstu þrír eru síðan Coutinho, Salah og Firmino.

Alex Oxlade-Chamberlain er á meðal varamanna.

Shinji Okazaki var maður leiksins gegn Liverpool í deildabikarnum í vikunni og hann byrjar í dag. Það er eina breytingin frá síðasta deildarleik Leicester, Okazaki kemur inn fyrir Iheanacho.

Hér að neðan eru byrjunarliðin.

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Simpson, Morgan (c), Maguire, Chilwell, Ndidi, King, Albrighton, Mahrez, Okazaki, Vardy.
(Varamenn: Hamer, Fuchs, Amartey, Iborra, Gray, Iheanacho, Slimani)

Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Gomez, Lovren, Matip, Moreno, Can, Henderson, Wijnaldum, Coutinho, Salah, Firmino.
(Varamenn: Karius, Milner, Sturridge, Solanke, Klavan, Oxlade-Chamberlain, Alexander-Arnold)





Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner