lau 23. september 2017 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte: Myndi leyfa dóttur minni að giftast Morata
Alvaro Morata.
Alvaro Morata.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur miklar mætur á spænska sóknarmanninum Alvaro Morata.

Conte segir að Morata sé góður strákur, en hann væri tilbúinn að leyfa honum að giftast dóttur sinni.

„Ég þekki Alvaro vel, hann er mjög góður strákur, góð manneskja," sagði Conte við blaðamenn í gær. „Ég tel að það hafi verið sniðugt hjá Chelsea að kaupa hann þar sem hann er bara 24 ára að aldri. Hann getur enn bætt sig mjög mikið."

„Hann er alltaf mjög einbeittur á æfingum, hegðun hans er alltaf til fyrirmyndar. Hann er mjög kurteis leikmaður, ég kann vel við og ég kann líka vel vð það að hann klárar færin sín vel."

„Hann er mjög góður strákur. Hann er þannig strákur sem þú myndir leyfa dóttur þinni að giftast."

Morata varð dýrasti leikmaður í sögu Chelsea í sumar. Hann hefur farið vel af stað og skorað þrjú mörk í fyrstu fjórum byrjunarliðsleikjum sínum. Hann hefur einnig lagt upp tvö mörk.

Morata verður líklega í byrjunarliði Chelsea í dag, þegar liðið heimsækir Stoke á einn erfiðasta útivöll ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn hefst á slaginu 14:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner