banner
   lau 23. september 2017 13:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Kane reyndist West Ham erfiður
Harry Kane skoraði tvö.
Harry Kane skoraði tvö.
Mynd: Getty Images
Aurier fékk glórulaust rautt spjald.
Aurier fékk glórulaust rautt spjald.
Mynd: Getty Images
West Ham 2 - 3 Tottenham
0-1 Harry Kane ('34 )
0-2 Harry Kane ('38 )
0-3 Christian Eriksen ('60 )
1-3 Javier Hernandez ('65 )
2-3 Cheikou Kouyate ('87 )
Rautt spjald: Serge Aurier, Tottenham ('70)

West Ham og Tottenham mættust í Lundúnaslag í dag sem bauð nánast upp á allt; mörk, rautt spjald og margt fleira.

Leikurinn var í járnum til að byrja með, en á 34. mínútu dró til tíðinda. Þá skoraði markahrókurinn Harry Kane, an hann var aftur á ferðinni aðeins fimm mínútum síðar. Hann kom Tottenham í 2-0.

Staðan var 2-0 í hálfleik, en í upphafi seinni hálfleiks voru gestirnir líklegri til að bæta við en West Ham að minnka muninn.

Spurs tókst svo að bæta við þegar Christian Eriksen skoraði þegar klukkutími var búinn af leiknum.

Javier Hernandez, Chicharito, tókst að minnka muninn á 65. mínúutu, en fimm mínútum eftir mark hans fékk Serge Aurier, bakvörður Tottenham, ansi klaufalegt rautt spjald. Hann fékk þá að líta sitt annað gula spjald fyrir glórulausa tæklingu.

West Ham tókst að minnka muninn í 3-2, en lengra komust þeir ekki. Sigur Tottenham staðreynd og þeir eru núna með 11 stig í þriðja sæti deildarinnar. West Ham er í 17. sæti með fjögur stig.

Leikir dagsins:
11:30 West Ham - Tottenham (Stöð 2 Sport)
14:00 Burnley - Huddersfield
14:00 Everton - Bournemouth
14:00 Manchester City - Crystal Palace
14:00 Southampton - Manchester United (Stöð 2 Sport)
14:00 Stoke - Chelsea
14:00 Swansea - Watford
16:30 Leicester - Liverpool (Stöð 2 Sport)

Hér að neðan má sjá stigatöfluna í deildinni, en það gæti tekið hana tíma að uppfæra sig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner