lau 23. september 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Filipe Luiz: Glaður að vinur minn sé að koma aftur
Costa er að fara aftur til Atletico Madrid.
Costa er að fara aftur til Atletico Madrid.
Mynd: Getty Images
Diego Costa er að snúa aftur til spænska félagsins Atletico Madrid, en það hefur glatt marga af leikmönnum Atletico.

Einn þeirra sem er mjög glaður með það að Costa sé að snúa aftur er bakvörðurinn Filipe Luis.

„Ég er stoltur af félaginu. Við erum að fá einn af þremur bestu sóknarmönnum heims," sagði Luis við Marca.

„Hann kemur hingað tilbúinn að vinna, berjast og gera okkur betri. Við munum vaxa með hann í liðinu. Ég er glaður að vinur minn sé að koma aftur," sagði Luiz enn fremur.

Costa fór frá Atletico til Chelsea árið 2014. Hann hefur ekki mætt til æfinga hjá Chelsea síðan hann fékk þær upplýsingar að hann væri ekki í áætlunum Antonio Conte fyrir þetta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner