Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 23. september 2017 17:14
Kristófer Jónsson
Gregg Ryder: Veltur á metnaði stjórnarinnar hvort ég verði áfram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, var að vonum ánægður eftir 4-0 sigur sinna manna gegn Fram í síðustu umferð Inkasso deildarinnar í dag.

„Ég er stoltur af strákunum hvernig þeir klára þetta tímabil. Við sýndum samkeppnina innan hópsins þar sem að ég gerði breytingar á liðinu og strákarnir sem komu inn spiluðu frábærlega."

Þróttur var lengi vel í baráttunni um að komast upp í Pepsi deildina að ári en eftir tapið gegn Fylki í þriðju síðustu umferðinni urður þær vonir að engu.

„Það er alltaf erfitt að fylgja eftir tímabili þar sem að þú fellur en mér finnst við hafa gert það vel. Við erum mjög nálægt því að vera á þeim stað sem við viljum vera en Fylkir og Keflavík eru vel að þessu komin."

Lestu um leikinn: Fram 0 -  4 Þróttur R.

Gregg var með samning við Þrótt út þetta tímabil og er hann í viðræðum við stjórn Þróttar um nýjan samning.

„Það sem er mikilvægast í þessu er að félagið hafi metnaðinn í það að komast upp í Pepsi deildina og halda sér þar. Það gerum við með því að fá inn góða leikmenn og vera með góða yngri flokka. Ef að stjórnin er sammála mér í þessu erum við í flottum málum." sagði Greg að lokum.

Þróttur endar þetta tímabil í 3.sæti Inkasso deildarinnar með 42 stig.
Athugasemdir
banner
banner