Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. september 2017 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Halda því fram að Everton hafi boðið 75 milljónir í Costa
Mynd: Getty Images
Chelsea er að selja sóknarmanninn Diego Costa til Atletico Madrid fyrir rúmlega 50 milljónir punda.

Chelsea hefði þó getað fengið hærri upphæð fyrir Costa ef hægt er að taka mark á frétt Marca í dag.

Þeir segja að Everton hafi verið tilbúið að borga Chelsea 75 milljónir evra fyrir markahrókinn.

Chelsea var auðvitað tilbúið að taka því, en leikmaðurinn sjálfur vildi ekki fara til Everton. Hann vildi bara snúa aftur til Atletico, þar sem hann spilaði áður en hann gekk í raðir Englandsmeistara Chelsea.

Everton vildi kaupa sóknarmann til að leysa Romelu Lukaku af, en það gekk ekki alveg hjá þeim. Þeir keyptu marga leikmenn, þar á meðal Gylfa Sigurðsson frá Swansea fyrir 45 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner