Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari HK var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Keflvíkingum í dag. Hann hafði þetta um leikinn að segja.
Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Keflavík
„Þetta var frábær frammistaða og er búið að vera framhald af því sem við erum búnir að vera gera, frábær vinnusemi, liðsheild, lenda undir á móti Keflavík og klára þetta með sigri er auðvita bara frábært, við hefðum getað skorað fleiri mörk, fengum alveg færin til þess gera útúm leikinn, en frábær frammistaða hjá öllum leikmönnum."
„Við erum að byggja upp ungt og efnilegt lið og erum með hörku karakter og erum með hungur í þessu liði og það er það sem er að skila sér og ætluðum okkur að klára þetta tímabil á fullum krafti og gerðum það svo sannarlega í dag."
Aðspurður um muninn á fyrri og seinni umferð hafði Jóhannes þetta að segja: „Við finnum stöðugleika þegar líður á en við erum með ungan hóp, óreyndan hóp, það var svolíiðt að nýjum leikmönnum sem komu inn og það tekur smá tíma að slípa þetta saman það tekur líka tíma fyrir stráka sem hafa aldrei spilað í inkassó deildinni að átta sig á hversu sterk deildin er en þeir sýndu það að þeir eru tilbúnir í þessa deild."
Jóhannes hefur verið orðaður við önnur störf svo sem hans gamla félag ÍA en var afar fámáll um þá spurningu.
„Ég er bara þjálfari HK eins og staðan er og með samning í eitt ár í viðbót."
Nánar er rætt við Jóhannes Karl í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir