Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 23. september 2017 10:45
Elvar Geir Magnússon
Sonur Donald Trump á sér þann draum að spila fyrir Arsenal
Donald Trump ásamt Barron og eiginkonunni.
Donald Trump ásamt Barron og eiginkonunni.
Mynd: Getty Images
Barron Trump, sonur Donald Trump Bandaríkjaforseta, hefur gengið í raðir MLS-félagsins DC United og spilar fyrir U12 liðið.

Barron er ellefu ára og er eina barnið sem Donald á með forsetafrúnni Melaniu Trump.

Barron hefur þegar spilað fjóra leiki á þessu tímabili og klæðist treyju númer 81.

Strákurinn er stuðningsmaður Arsenal og dreymir um að spila fyrir enska félagið einn daginn. Myndir hafa náðst af honum vera að leika sér í fótbolta í Arsenal-treyju í garði Hvíta hússins.


Athugasemdir
banner
banner
banner