banner
   lau 23. september 2017 16:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Real Madrid aftur á sigurbraut
Ceballos var hörkugóður í dag.
Ceballos var hörkugóður í dag.
Mynd: Getty Images
Alaves 1 - 2 Real Madrid
0-1 Dani Ceballos ('10 )
1-1 Manu Garcia ('40 )
1-2 Dani Ceballos ('43 )

Real Madrid komst aftur á beinu brautina með útisigri á Deportivo Alaves í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Real tapaði síðasta leik gegn Real Betis, á heimavelli, og voru sjö stigum á eftir Barcelona fyrir daginn í dag.

Þeir náðu að minnka forskot Barcelona í fjögur stig, alla vega í bili. Barcelona leikur seinna í dag gegn Girona.

Dani Ceballos, sem kom til Madrídinga frá Real Betis í sumar, skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Alaves.
Athugasemdir
banner
banner
banner