Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 23. september 2017 17:01
Valur Gunnarsson
Tóti Dan: Staða knattspyrnustjóra á Íslandi er ótrygg
Þórhallur gat ekki svarað hvort hann yrði áfram á næsta ári
Þórhallur gat ekki svarað hvort hann yrði áfram á næsta ári
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Það sem við ætluðum að taka út úr þessum leik er að leggja inn fyrir næsta tímabil og mér fannst við gera það. Spiluðum fínan fótbolta og vorum klaufar að skora ekki mark í restina."

Sagði Þórhallur Dan þjálfari Gróttu eftir 2-1 tap gegn Leiknismönnum í Breiðholtinu.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 -  1 Grótta

„Við ætluðum okkur ekki að falla en það er margt sem við getum tekið jákvætt útúr þessu en líka margt sem við þurfum að laga."

Grótta fékk dauðafæri á síðustu sekúndu leiksins til að jafna leikinn. Aðspurður útí atvikið sagði Þórhallur:
„Já, þetta er lýsandi fyrir sumarið. En það sem var gott í þessum leik er að við gáfum þeim ekki boltann og þeir skoruðu á okkur. Við fengum fullt af færum, góðum skotum, og fengum meira framlag frá fullt af leikmönum."

Aðspurður útí það hovrt hann héldi áfram með liðið á næsta ári svaraði Þórhallur:
„Þetta er í þriðja skiptið sem ég spurður útí þetta en eins og allir vita er staða knattspyrnustjóra á Íslandi ótrygg. Við förum í frí núna svo hittist stjórnin og við tökum það samtal þegar þar að kemur. Þið fáið að vita ef ég verð áfram og ef ég verð ekki áfram."
Athugasemdir
banner
banner