Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   lau 23. september 2017 17:17
Lilja Dögg Valþórsdóttir
Úlfur: Var aldrei að reyna að ná í þetta 2. sæti
Úlfur var eðlilega svekktur eftir tapið í dag
Úlfur var eðlilega svekktur eftir tapið í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
“Við gáfum þeim tvö mörk í leiknum í dag, ansi ódýr, á silfurfati. Mér fannst við bara ekki skapa okkur nógu mikið á síðasta þriðjungi til að vinna þennan leik því miður. En FH liðið spilaði vel í dag og því miður náðum við ekki að koma í veg fyrir þessi mörk sem við fengum á okkur og náðum ekki að skapa okkur nóg. Það er það sem klikkaði,” sagði Úlfur Blandon, þjálfari Vals, eftir 2-0 tap gegn FH í dag.

Lestu um leikinn: FH 2 -  0 Valur

Valsliðið hefur verið á góðri siglingu eftir EM pásuna fyrr í sumar og hafa þær skorað 18 mörk í þeim 5 leikjum sem þær hafa spilað eftir pásuna. En þær virtust ekki finna neinar glufur á vörn FH í dag.

“Nei við auðvitað spiluðum bara ekki nógu vel í dag. Það er bara hluti af þessu. Þú átt góða leiki og þú átt slæma leiki. Og í dag áttum við ekki nógu góðan leik. Við þurfum að rífa okkur í gang fyrir næsta leik. Það er það sem við þurfum að gera og ég veit það að við höfum mikla trú á því að við komum til baka í síðasta leiknum á tímabilinu og gerum það sem þarf að gera.”

Með sigri í dag eygðu Valsstúlkur von um að ná 2. sæti deildarinnar en það er nú ljóst að það er runnið þeim úr greipum eftir tapið fyrir FH. Það hlýtur að vera svekkjandi niðurstaða.

“Mig langaði alltaf í 1. sæti sko. Ég var aldrei að reyna að ná í þetta 2. sæti en auðvitað hefði verið skemmtilegra að enda ofar heldur en 3. sæti eða 4. sæti. En við ætlum að vinna síðasta leikinn. Það er númer eitt, tvö og þrjú,” sagði Úlfur að lokum.

Viðtalið við Úlf má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner