Elísbet Guðmundsdóttir er gengin í raðir nýliða KR í Pepsi-deild kvenna en hún kemur frá FH sem féll úr deildinni í sumar.
Elísabet ætti að vera öllum hnútum kunnug hjá KR því þar lék hún nýliðið sumar á láni frá FH. Hún skoraði þá eitt mark í 16 leikjum með KR í 1. deild kvenna og Borgunarbikarnum.
Elísabet ætti að vera öllum hnútum kunnug hjá KR því þar lék hún nýliðið sumar á láni frá FH. Hún skoraði þá eitt mark í 16 leikjum með KR í 1. deild kvenna og Borgunarbikarnum.
Þá hefur félagið einnig fengið til liðs við sig Lejla Cardaklija frá Sindra á Hornfafirði. Lejla hefur alla tíð leikið með Sindra, en missti þó af mótinu í ár vegna meiðsla.
Lejla leikur ýmist á miðjunni eða í vörninni og skoraði fimm mörk í 87 deildar- og bikarleikjum með Sindra.
Þá hefur KR framlengt samninga við tvo leikmenn, Sigríði Maríu Sigurðardóttur og Sigrúnu Birtu Kristinsdóttur. Þær gerðu báðar eins árs samning við félagið.
Athugasemdir