fim 23. október 2014 20:05
Ívan Guðjón Baldursson
Rafa Benitez: Það er margt sem við þurfum að bæta
Mynd: Getty Images
Napoli tapaði fyrir Young Boys í Evrópudeildinni í dag og er liðið með sex stig í þriðja sæti I-riðils keppninnar.

Rafael Benitez var ekki ánægður með frammistöðu sinna manna í Sviss og sagði sína menn ekki hafa barist nógu mikið til að vinna.

,,Við fengum mörk á okkur þegar það vantaði grimmd og ákveðni í varnarleikinn," sagði Benitez eftir leikinn.

,,Ég bjóst við öðruvísi leik. Við stjórnuðum leiknum en eftir að þeir komust yfir lokuðu þeir vörninni vel.

,,Við vildum ekki sigurinn nógu mikið. Það er margt sem við þurfum að bæta, sérstaklega vinnuframlagið."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner