Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. október 2014 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Þjálfari Young Boys þakkar Rafa Benitez fyrir liðsvalið
Uli Forte þakkaði Rafa Benitez fyrir liðsvalið.
Uli Forte þakkaði Rafa Benitez fyrir liðsvalið.
Mynd: Getty Images
Uli Forte, þjálfari Young Boys, þakkaði Rafael Benitez fyrir valið á byrjunarliði Napoli eftir 2-0 sigur Svisslendinganna.

Sigur Young Boys var óvæntur en liðið er nú á toppi riðilsins ásamt Napoli og Sparta Prag.

,,Við spiluðum mjög vel og gáfumst aldrei upp," sagði Forte á fréttamannafundi eftir leikinn.

,,Þetta voru mjög mikilvæg þrjú stig til að komast í baráttuna um að komast í útsláttarkeppni. Við viljum ekki detta úr leik í riðlakeppni.

,,Napoli breytti byrjunarliðinu sínu og það var lykillinn að sigri okkar ásamt ákveðninni sem við sýndum.

,,Ég bjóst við að sjá Gonzalo Higuain í byrjunarliðinu og var mjög ánægður þegar ég sá byrjunarliðið. Það var stórkostlegt að sjá Callejon, Hamsik og Higuain á bekknum."

Athugasemdir
banner
banner