Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. október 2014 10:30
Magnús Már Einarsson
UEFA og KSÍ gefa 82 milljónir í til barna- og unglingastarf
Úr leik í yngri flokkum.
Úr leik í yngri flokkum.
Mynd: Fréttir/Vestmannaeyjum - Júlíus Ingason
Úr leik hjá Stjörnunni og Val í 2. flokki.
Úr leik hjá Stjörnunni og Val í 2. flokki.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
KR og Fjölnir í bikarúrslitaelik í 3. flokki.
KR og Fjölnir í bikarúrslitaelik í 3. flokki.
Mynd: Óli Brynjar Halldórsson
UEFA hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2013/2014 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga. Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2014 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 43 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna – og unglingastarfs renna til félaga í efstu deild. Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi-deild karla.

Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 39 milljónir króna til viðbótar sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda en skipting á framlagi til barna – og unglingastarfs verður þá með þeim hætti að félög úr Pepsi-deild fá kr. 3.575.000 sem er framlag UEFA, félög úr 1. deild fá kr. 1.600.000 , félög í 2. deild karla fá kr. 1.100.000 hvert, önnur félög í deildarkeppni kr. 800.000 og félög utan deildarkeppni kr. 250.000. Úthlutun er háð því að félög haldi úti starfsemi í yngri flokkum og skulu félög utan deildarkeppni og félög sem ekki halda úti starfsemi hjá báðum kynjum sækja sérstaklega um framlag.

Samþykkt stjórnar KSÍ byggir á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna.

Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna. Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2014 áætlað um 82 milljónir króna.

Eftirfarandi tafla sýnir greiðslur í milljónum króna frá UEFA vegna Meistaradeildarinnar 2013/2014 og frá KSÍ til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga KSÍ. Styrkurinn kemur til greiðslu 3. nóvember 2014.

Pepsi-deild Upphæð
Breiðablik 3.575.000 kr.
FH 3.575.000 kr.
Fram 3.575.000 kr.
Fylkir 3.575.000 kr.
Fjölnir 3.575.000 kr.
ÍBV 3.575.000 kr.
Keflavík 3.575.000 kr.
KR 3.575.000 kr.
Stjarnan 3.575.000 kr.
Valur 3.575.000 kr.
Víkingur R 3.575.000 kr.
Þór 3.575.000 kr.
42.900.000 kr.

1. deild Upphæð
ÍA 1.600.000 kr.
Grindavík 1.600.000 kr.
Haukar 1.600.000 kr.
KA 1.600.000 kr.
HK 1.600.000 kr.
Leiknir R 1.600.000 kr.
Selfoss 1.600.000 kr.
Tindastóll 1.600.000 kr.
Víkingur Ó 1.600.000 kr.
Þróttur 1.600.000 kr.
16.000.000 kr.

2. deild Upphæð
Afturelding 1.100.000 kr.
Grótta 1.100.000 kr.
Huginn 1.100.000 kr.
KF 1.100.000 kr.
Völsungur 1.100.000 kr.
ÍR 1.100.000 kr.
Njarðvík 1.100.000 kr.
Reynir S 1.100.000 kr.
Sindri 1.100.000 kr.
Ægir 1.100.000 kr.
11.000.000 kr.

Önnur félög í deildarkeppni og sameiginleg lið í efri deildum - þátttaka í KSÍ mótum (bæði kyn) Upphæð
Austri 800.000 kr.
Álftanes 800.000 kr.
BÍ 800.000 kr.
Bolungarvík 800.000 kr.
Dalvík 800.000 kr.
Einherji 800.000 kr.
Grundarfjörður 800.000 kr.
Hamar 800.000 kr.
Hvöt 800.000 kr.
Höttur 800.000 kr.
Leiknir F 800.000 kr.
Snæfell 800.000 kr.
Valur Rfj 800.000 kr.
Víðir 800.000 kr.
Þróttur Nes 800.000 kr.
12.000.000 kr.
Athugasemdir
banner
banner
banner