Louis van Gaal, stjóri Manchester United, hefur boðið spænska markverðinum Victor Valdes að ljúka endurhæfingu sinni eftir meiðsli hjá féalginu.
Valdes sleit krossband fyrr á árinu en hann er allur að koma til.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið ítrekað orðaður við Liverpool en nú ætlar hann að æfa með erkifjendunum í Manchester United.
Valdes sleit krossband fyrr á árinu en hann er allur að koma til.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið ítrekað orðaður við Liverpool en nú ætlar hann að æfa með erkifjendunum í Manchester United.
,,Valdes, sem er án félags, mun fá ráðleggingar í endurhæfingunni hjá læknaliði United áður en hann hefur æfingar með aðalliðinu til að komast aftur í sitt besta form," sagði á heimasíðu Manchester United í dag.
Athugasemdir