Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 23. október 2016 15:41
Jóhann Ingi Hafþórsson
Anichebe með eitt kjánalegasta tíst ársins
Victor Anichebe er kjáni.
Victor Anichebe er kjáni.
Mynd: Getty Images
Victor Anichebe, leikmaður Sunderland var ansi mikill klaufi á Twitter eftir tap liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Leikmenn nota oft samféalgsmiðla eins og Twitter til að þakka stuðningsmönnum og fleira í þeim dúr.

Fjölmiðlafulltrúi Sunderland bað greinilega framherjann um að koma með því um líkt tíst eftir leikinn gegn West Ham.

Hann gleymdi hins vegar að eyða út beðni starfsmanns félagsins. Hann tístaði því;

„Geturu tístað einhverju svona"
„Ótrúlegur stuðningur í gær og góð barátta hjá strákunum. Það er erfitt að taka þessu en við höldum áfram."

Tístið má sjá hér að neðan en hann er nú búinn að eyða færslunni.



Athugasemdir
banner
banner
banner