Það er heldur betur stórleikur sem fer fram núna kl 15:30. Þá mætast Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge.
Þetta er í fyrsta skipti sem Jose Mourinho fer með annað lið en Chelsea á brúnna í ensku úrvalsdeildinni.
Chelsea er í 5. sæti með 16 stig fyrir leikinn en Manchester United er með 14 stig í 7. sæti.
Hér að neðan má sjá byrjunarlið leiksins en athygli vekur að Jesse Lingard byrjar hjá United en hann átti góðan leik gegn Fenerbache í Evrópudeildinni í vikunni.
Wayne Rooney er ekki í leikmannahópnum hjá United í dag en staðfest er að hann er á meiðslalistanum.
Byrjunarlið Chelsea:
Courtois, Azpilicueta, Luiz, Cahill, Moses, Matic, Kante, Alonso, Pedro, Hazard, Costa
Byrjunarlið Manchester United:
De Gea, Blind, Smalling, Bailly, Valencia, Fellaini, Herrera, Rashford, Pogba, Lingard, Zlatan
Athugasemdir