banner
   sun 23. október 2016 17:21
Jóhann Ingi Hafþórsson
Eden Hazard: Þetta er frábær dagur
Hazard fagnar í dag
Hazard fagnar í dag
Mynd: Getty Images
„Þetta gefur okkur mikið sjálfstraust. Við byrjuðum vel, áttum skilið að vinna. Þetta var frábær dagur," sagði Eden Hazard, leikmaður Chelsea, eftir 4-0 sigur liðsins á Manchester United í dag en Hazard skoraði þriðja mark Chelsea í leiknum.

United átti aldrei séns í mjög gott Chelsea lið.

„Þetta var stórleikur og við höfðum tapað tveim stórum leikjum gegn Liverpool og Arsenal svo þetta var mjög mikilvægt fyrir okkur og stuðningsmenn okkar"

Þetta var stærsti ósigur Mourinho í ensku úrvalsdeildinni og algjör niðurlæging.
Athugasemdir
banner
banner
banner