sun 23. október 2016 16:19
Jóhann Ingi Hafþórsson
Guardiola: Við áttum skilið að vinna
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
„Seinni hálfleikurinn var mikið betri. Fyrri hálfleikurinn var alls ekki góður. Auðvitað var það ekki planið hjá okkur að gefa á framherjann þeirra í góðu færi," sagði Pep Guardiola, þjálfari Manchester City eftir 1-1 jafntefli við Southampton í dag.

Southampton komst yfir með marki Nathan Redmond eftir skeflileg mistök frá John Stones en hann gaf boltann beint á Redmond sem skoraði.

„Leikmennirnir bættu upp fyrir lélegan fyrri hálfleik með góðum seinni hálfleik. Þeir breyttu leiknum, ekki ég. Við áttum skilið að vinna leikinn en Southampton gerði okkur erfitt fyrir. Þeir eru með góða varnarmenn," sagði Spánverjinn.

„Við höfum ekki unnið í fimm leikjum í röð en við erum að spila vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner