Óvænt uppákoma átti sér stað í búlgörsku deildinni um helgina þegar villuráfandi önd ákvað að koma sér fyrir í vítateignum og trufla leik Ludogorets og Lokomotiv.
Í stöðunni 1-0 fyrir Ludogorets fengu leikmenn óvæntan gest. Ivan Cvorovic, markmaður Lokomotiv, átti nokkrar máttlausar tilraunir til að fjarlæga þennan frænda Andrésar og þurfti dómarinn að stöðva leikinn um stund.
Þegar leikurinn hófst aftur var strax ljóst að Cvorovic var í miklu áfalli eftir ógnandi tilburði smávöxnu andarinnar og fékk hann á sig þrjú mörk til viðbótar.
Sjón er sögu ríkari.
CATIOLO em campo nós vemos todo dia, mas UM PATO... Só na Bulgária, mesmo. @impedimento pic.twitter.com/hcy0Kw0VEY
— Non Sense Football (@NSenseFootball) October 22, 2016
Athugasemdir