Tony Pulis, þjálfari WBA, segir Liverpool vera líklega til að vinna ensku úrvalsdeildina í ár.
Pulis hrósaði Liverpool mikið fyrir leik sinn á móti sínu liði í gær en sóknarleikur Liverpool var á köflum frábær þar sem Philippe Coutinho var í essinu sínu.
„Fremstu fimm leikmenn þeirra eru með þeim betri í deildinni. Þeir eru ekki í Evrópu og þeir líta vel út."
„Síðast þegar þeir voru ekki í Evrópu komust þeir mjög nálægt tiltinum undir Brendan Rodgers. Þetta lið á klárlega séns," sagði Pulis.
Athugasemdir