Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. október 2016 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Aron og félagar heimsækja ofurnýliðana
Mynd: Getty Images
Það eru tveir leikir á dagskrá í þýsku efstu deildinni í dag þar sem Red Bull Leipzig fær Werder Bremen í heimsókn í fyrri leik dagsins.

Leipzig eru nýliðar í þýsku efstu deildinni, en þetta félag var stofnað fyrir nokkrum árum og hefur síðan þá unnið hverja deildina fætur annari og er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

Leipzig er eitt af þremur taplausum liðum í deildinni, með 15 stig eftir 7 umferðir, og getur komist í 2. sæti með sigri í dag.

Aron Jóhannsson og félagar í Werder Bremen eru með 7 stig, en Aron er nýlega kominn úr meiðslum og gæti byrjað á bekknum.

Schalke tekur svo á móti Mainz, en Schalke byrjaði tímabilið á fimm tapleikjum í röð á meðan Mainz er um miðja deild.

Leikir dagsins:
13:30 RB Leipzig - Werder Bremen
15:30 Schalke - Mainz
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner