Brasilíski bakvörðurinn Marcelo telur liðsfélaga sinn Karim Benzema vera bestu níu í Evrópu.
Þetta sagði Marcelo eftir 3-0 sigur gegn Eibar í gær, þar sem Benzema kom af bekknum og lagði upp þriðja markið fyrir Marcelo.
Þetta sagði Marcelo eftir 3-0 sigur gegn Eibar í gær, þar sem Benzema kom af bekknum og lagði upp þriðja markið fyrir Marcelo.
„Ég er mjög ánægður með að hafa skorað en sigurinn var allt sem skipti máli. Úrslitin eru góð og við áttum góðan leik, það gerir mig ánægðan," sagði Marcelo að leikslokum.
„Benzema er frábær leikmaður, hann skorar mikið af mörkum en hann gerir marga aðra mikilvæga hluti í sóknarleiknum. Hann leggur upp, er stöðugt á hreyfingu og tekur virkan þátt í sóknarspilinu.
„Að mínu mati er hann besta nían í Evrópu, fólk gleymir því oft hversu erfið þessi deild er. Bestu liðin eru hér og það er gífurlega erfitt að vinna leiki."
Athugasemdir