Það er nóg að gera hjá landsliðskonunni Söndru Sigurðardóttur þessa dagana. Hún er mætt til Tékklands með íslenska landsliðinu sem mætir heimakonum í undakeppni HM á morgun. Á föstudaginn fagnaði Sandra íslenskum sigri á Þjóðverjum og í gær útskrifaðist hún sem sjúkraþjálfari.
„Mig langaði að vera í heilbrigðisgeiranum. Mér fannst læknir vera svolítið yfirþyrmandi. Mamma og pabbi eru bæði hjúkrunarfræðingar og svo vildi ég jafnvel tengja þetta íþróttunum,“ sagði Sandra aðspurð um af hverju sjúkraþjálfun hafi orðið fyrir valinu.
Sandra segir að íslenski hópurinn sé visslega í skýjunum með úrslitin gegn Þýskalandi en að nú sé öll einbeiting farin á leikinn gegn Tékkum.
„Við erum öll ótrúlega ánægð með þessi úrslit. Þetta var framar vonum en samt ekki. Við höfðum auðvitað trú á því að við gætum fengið eitthvað hérna úti. Hinsvegar eru allar fókusaðar á næsta verkefni og við viljum ná góðum úrslitum á móti Tékkum. Við vitum að þær eru góðar líka og að ná stigum á móti þeim á útivelli væri líka brilliant.“
Nánar er rætt við Söndru í spilaranum hér að ofan en þar ræðir hún meðal annars um hvernig markmennirnir í hópnum undirbúa sig fyrir landsliðsverkefni.
Athugasemdir