Fylkir sigraði Hauka 2-1 í æfingaleik á Fylkisvelli í gærmorgun. Ásgeir Ingólfsson kom Haukum yfir úr vítaspyrnu en Albert Brynjar Ingason jafnaði fyrir Fylki undir lok fyrri hálfleik. Oddur Ingi Guðmundsson skoraði síðan sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik.
ÍA sigraði Gróttu einnig örugglega 3-0 í æfingaleik á Seltjarnarnesi í gær þar sem öll mörkin komu í síðari hálfleik.
Fylkir 2 - 1 Haukar
0-1 Ásgeir Þór Ingólfsson (Víti)
1-1 Albert Brynjar Ingason
2-1 Oddur Ingi Guðmundsson
Grótta 0 - 3 ÍA
0-1 Guðlaugur Þór Brandsson
0-2 Gylfi Veigar Gylfason
0-3 Sindri Snæfells Kristinsson
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir