Massimo Allegri, þjálfari Juventus á Ítalíu, segir að Paul Pogba, miðjumaður liðsins, hafi alla burði í að verða besti miðjumaður heims einn daginn.
Franski landsliðsmaðurinn gerði tvö mörk í 0-3 sigri Juventus á Lazio í gær en Juventus hefur ekki tapað fyrir Lazio í 20 deildarleikjum í röð.
Allegri var afar ánægður með Pogba en hann telur að hann geti orðið besti miðjumaður heims.
,,Pogba átti frábæran leik en hann hefur gæðin í að gera betur. Hann getur orðið besti miðjumaður í heimi," sagði Allegri.
Athugasemdir