Bröndby 1 - 0 Sönderjyske
1-0 Andrew Hjulsager ('65 )
1-0 Andrew Hjulsager ('65 )
Bröndby sigraði lið Sonderjyske með einu marki gegn engu í dönsku úrvalsdeildinni en Hólmbert Aron Friðjónsson fékk tækifærið í byrjunarliðinu og nýtti það vel.
Hallgrímur Jónasson var á sínum stað í byrjunarliði Sönderjyske í dag en hann lék allan leikinn með liðinu.
Hólmbert Aron Friðjónsson fékk þá tækifærið með Bröndby og nýtti það gríðarlega vel en hann lagði upp sigurmarkið á 65. mínútu er Andrew Hjulsager skoraði.
Hólmbert var skipt af velli á 72. mínútu leiksins en hann er búinn að spila sex leiki í dönsku deildinni á þessu tímabili.
Hann er láni frá Glasgow Celtic í Skotlandi en Hólmbert gekk til liðs við Celtic á síðasta ári frá Fram.
Brondby er í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig en Sonderjyske með 18 stig í níunda sæti.
Athugasemdir