Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. nóvember 2014 13:21
Arnar Geir Halldórsson
Fernando Torres: Draumur að rætast
Tekst Torres að skora í kvöld?
Tekst Torres að skora í kvöld?
Mynd: Getty Images
Fernando Torres getur ekki beðið eftir kvöldinu en í kvöld mætast Mílanó stórveldin á San Siro.

,,Milan-Inter er er einn af þessum leikjum sem mig hefur alltaf dreymt um að spila, allt frá því ég var krakki. Þegar ég kom hingað í ágúst var það fyrsta sem ég gerði að skoða leikjaplanið og leitaði að leiknum gegn Inter," sagði Spánverjinn.

,,Stuðningsmennirnir hafa beðið mig ítrekað að skora og vinna grannaslaginn," sagði Torres einnig en hann hefur farið rólega af stað hjá AC Milan.

Torres er kominn með eitt mark í níu leikjum en AC er í 7.sæti deildarinnar, 14 stigum á eftir toppliði Juventus.

Inter er með einu stigi minna en AC í 9.sæti deildarinnar en leikurinn í kvöld verður fyrsti leikur Inter undir stjórn Roberto Mancini sem tók nýverið við liðinu í annað sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner