Brann og Mjondalen gerðu í kvöld 1-1 jafntefli er liðin mættust í umspili um sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Brann hafnaði í fjórtánda sæti norsku úrvalsdeildarinnar og þurfti því að fara í umspil við Mjondalen sem hafnaði í þriðja sæti norsku fyrstu deildarinnar.
Vamoiti Diomande kom Mjondalen yfir í leiknum í dag áður en Kasper Skaanes jafnaði metin fyrir Brann.
Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn í liði Brann en síðari leikur þessara liða fer fram á heimavelli Mjondalen eftir þrjá daga.
Athugasemdir