Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. nóvember 2014 15:47
Brynjar Ingi Erluson
Yannick Bolasie: Ein besta vika lífs míns
Yannick Bolasie í leiknum gegn Liverpool
Yannick Bolasie í leiknum gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Yannick Bolasie, leikmaður Crystal Palace á Englandi, átti stórleik er lið hans sigraði Liverpool með þremur mörkum gegn einu í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Bolasie var gríðarlega öflugur gegn Liverpool í dag en vörn gestanna náði engum tökum á leikmanninum.

Hann átti stóran þátt í fyrsta marki leiksins er hann hamraði af 25 metra færi og í stöng áður en Dwight Gayle tók frákastið og skoraði. Þá lagði hann upp annað markið en leikur hans var nánast óaðfinnanlegur.

,,Þetta hefur verið ein besta vika lífs míns. Að komast í Afríkukeppnina með Kongó þar sem ég skoraði tvö mörk og svo leggja eitt upp í dag. Ég gerði vel gegn Liverpool á síðasta ári og var með góða tilfinningu fyrir leiknum í dag," sagði Bolasie.
Athugasemdir
banner
banner
banner